Þessi skýrsla hefur verið gerð í samræmi við GRI 1: Foundation 2021
Í GRI 2 almennri upplýsingagjöf og GRI 3 mikilvæg efnisatriði er markmiðið að gera grein fyrir starfsemi fyrirtækisins, stefnu, stærð og staðsetningu þess, stjórnarháttum auk umgjarðar skýrslunnar. Einnig er lýst hvernig unnið er með einstaka málaflokka samfélagslegrar ábyrgðar í liðum 200, 300 og 400. Ártalið fyrir aftan hvern GRI-vísi greinir frá hvaða staðall er notaður.
Taflan hér fyrir neðan sýnir hvar greint er frá aðgerðum í ársskýrslu 2023 sem greinir frá samfélagslegri ábyrgð.
GRI 2 | Upplýsingar | Staðsetning | Heimsmarkmið | |
2-1 | Um fyrirtækið | Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins - ÁTVR, Stuðlaháls 2, 110 Reykjavík. ÁTVR er eingöngu með starfsemi á Íslandi. ÁTVR er alfarið í eigu íslenska ríkisins. | ||
2-2 | Rekstrareiningar/aðilar sem falla undir upplýsingagjöf fyrirtækisins um sjálfbærni | Rekstur ÁTVR, 51 Vínbúð og netverslun, heildsala tóbaks og neftóbaksframleiðsla. Upplýsingagjöf í árs- og samfélagsskýrslu sem unnin er samkvæmt GRI staðlinum. | ||
2-3 | Skýrslutímabil, tíðni og samskiptaupplýsingar | Tímabilið frá 1.1.2023 til 31.12.2023. skýrsla gefin út árlega. Netfang: vinbudin@vinbudin.is | ||
2-4 | Endurframsettar upplýsingar | Losunarsvið 3 er með rúmlega 99% af CO2 losun. Ný lífsferilsgreining (LCA) reiknuð fyrir vörusafn með sölutölum ársins 2022. Nýir losunarstuðlar og losunartölur endurreiknaðar til viðmiðunarárs 2020 og losun umbúða til 2018. | ||
2-5 | Ytri úttekt og vottun | Áritun ríkisendurskoðenda fyrir fjárhagslegar upplýsingar. Sjálfbærniskýrsla staðfest með nægilegri vissu af Deloitte. Rekstur ÁTVR er smásala og fellur ekki undir tæknilegu matsviðmið flokkunarreglugerðar ESB (Taxonomy) eins og er. | ||
GRI 2 | Upplýsingar | Staðsetning | Heimsmarkmið | |
2-6 | Starfsemi, virðiskeðja og önnur viðskiptasambönd | |||
2-7 | Starfsfólk | Starfsfólk alls 489 (274 konur, 213 karlar og 2 hlutlaust kyn) - Konur 56% - Karlar 44% | 8 | |
2-8 | Vinnuafl sem er ekki starfsfólk | |||
GRI 2 | Upplýsingar | Staðsetning | Heimsmarkmið | |
2-9 | Stjórnskipulag og skipurit | |||
2-10 | Tilnefning og val á æðstu stjórnendum | |||
2-11 | Stjórnarformaður | Enginn stjórnarformaður | ||
2-12 | Aðkoma æðstu stjórnar að eftirliti með stýringu áhrifa | |||
2-13 | Framsal ábyrgðar fyrir stýringu áhrifa | |||
2-14 | Aðkoma æðstu stjórnar að upplýsingagjöf um sjálfbærni | Aðstoðarforstjóri er ábyrgur fyrir samfélaglegri ábyrgð og upplýsingagjöf um sjálfbærni | ||
2-15 | Hagsmunaárekstrar | |||
2-16 | Upplýsingagjöf um veigamikil atriði | |||
2-17 | Heildarþekking æðstu stjórnar | |||
2-18 | Mat á frammistöðu æðstu stjórnar | |||
2-19 | Starfskjarastefnur | |||
2-20 | Launaákvörðunarferli | |||
2-21 | Árlegur launasamanburður | |||
GRI 2 | Upplýsingar | Staðsetning | Heimsmarkmið | |
2-22 | Yfirlýsing um stefnu í sjálfbærri þróun | Umhverfis- og loftslagsstefna ÁTVR og Roadmap með norrænu áfengiseinkasölunum | ||
2-23 | Skuldbindingar skv. stefnumiðum | Umhverfis- og loftslagsstefna ÁTVR og Roadmap með norrænu áfengiseinkasölunum. Markmiðið er 50% samdráttur kolefnislosunar í losunarsviði 3, eða allri virðiskeðjunni fyrir 2030, viðmiðunarár 2020. | ||
2-24 | Samþætting skuldbindinga skv. stefnumiðum | Stefna og markmið í Umhverfis- og loftslagsstefnu ÁTVR eru samþykkt af framkvæmdastjórn | ||
2-25 | Úrbótaferli vegna neikvæðra áhrifa | |||
2-26 | Verkferlar til að leita ráðgjafar og tilkynna álitamál | |||
2-27 | Hlíting laga og reglna | Engar sektir eða brot | ||
2-28 | Aðild að samstarfi og félögum | |||
GRI 2 | Upplýsingar | Staðsetning | Heimsmarkmið | |
2-29 | Aðkoma hagsmunaaðila - nálgun | |||
2-30 | Kjarasamningar | 8 | ||
GRI 3 | Upplýsingar | Staðsetning | Heimsmarkmið | |
3-1 | Útskýring á viðfangsefni og mörkum þess | |||
3-2 | Stjórnunarnálgunin og þættir hennar | |||
3-3 | Mat á stjórnunarnálguninni | |||
Efnahagur | ||||
GRI 201 | Upplýsingar | Staðsetning | Heimsmarkmið | |
201-1 | Beint efnahagslegt virði sem er skapað og dreift | 8 | ||
201-2 | Fjárhagsleg áhrif og önnur áhætta og tækifæri sökum loftslagsbreytinga | 13 | ||
201-3 | Skilgreint fyrirkomulag skuldbindinga um bætur og annað fyrirkomulag eftirlauna | 8 | ||
201-4 | Fjárhagsaðstoð frá stjórnvöldum | 500 milljónir greiddar í arð til ríkissjóðs | ||
GRI 204 | Upplýsingar | Staðsetning | Heimsmarkmið | |
204-1 | Hlutfall útgjalda til birgja í nærsamfélaginu | 12 | ||
GRI 205 | Upplýsingar | Staðsetning | Heimsmarkmið | |
205-1 | Mat á rekstri vegna áhættu sem tengist spillingu | Árleg birgjakönnun | 16 | |
Umhverfi | ||||
GRI 301 | Upplýsingar | Staðsetning | Heimsmarkmið | |
301-1 | Efni sem notuð eru eftir þyngd eða rúmmáli | 12 | ||
301-3 | Endurvinnanlegar vörur og efni notað í umbúðir þeirra | 89% skilahlutfall umbúða á Íslandi | 12 | |
GRI 302 | Upplýsingar | Staðsetning | Heimsmarkmið | |
302-1 | Orkunotkun innan skipulagsheildarinnar | Raforka, jarðhiti, jarðolía og kælimiðlar | 7, 12, 13 | |
302-4 | Minnkun á orkunotkun | Raforka -3% og kælimiðlar -8% | 12, 13 | |
GRI 304 | Upplýsingar | Staðsetning | Heimsmarkmið | |
304-2 | Veruleg áhrif á líffræðilegan fjölbreytileika. af starfsemi, vöru og þjónustu | 15 | ||
GRI 305 | Upplýsingar | Staðsetning | Heimsmarkmið | |
305-1 | Bein losun gróðurhúsalofttegunda (GHL) (losunarsvið1) | 149 tonn CO2e | 3, 12, 13, 14, 15 | |
305-2 | Óbein orkulosun gróðurhúsalofttegunda (GHL) (losunarsvið 2) | 83 tonn CO2e | 3, 12, 13, 14, 15 | |
305-3 | Önnur óbein losun gróðurhúsalofttegunda (GHL) (losunarsvið 3) | 55.431 tonn CO2e | 3, 12, 13, 14, 15 | |
305-4 | Styrkur á losun gróðurhúsalofttegunda (GHL) | 3, 13, 14, 15 | ||
305-5 | Minnkun á losun gróðurhúsalofttegunda (GHL) | 3% samdráttur eða -1.606 tonn CO2e í öllum losunarsviðum. 4% samdráttur í umbúðum vörusafns. | 13, 14, 15 | |
305-6 | Losun ósoneyðandi efna | 3, 12 | ||
GRI 306 | Upplýsingar | Staðsetning | Heimsmarkmið | |
306-1 | Úrgangsmyndun og veruleg úrgangstengd áhrif | 87% endurvinnsluhlutfall | ||
GRI 307 | Upplýsingar | Staðsetning | Heimsmarkmið | |
307-1 | Ekki farið að umhverfislögum og reglum | Engar sektir eða brot | ||
Samfélag | ||||
GRI 401 | Upplýsingar | Staðsetning | Heimsmarkmið | |
401-1 | Nýráðningar starfsmanna og starfsmannavelta | Starfsmannavelta 29% | 5, 8 | |
401-2 | Fríðindi fyrir starfsfólk í fullu starfi en ekki fyrir starfsfólk í hluta eða tímabundnu starfi | Samgöngusamningar | 3, 8 | |
GRI 402 | Upplýsingar | Staðsetning | Heimsmarkmið | |
402-1 | Lágmarks uppsagnarfrestur ef breytingar verða á rekstri | |||
GRI 403 | Upplýsingar | Staðsetning | Heimsmarkmið | |
403-1 | Fyrirsvar í formlegum og sameiginlegum heilsu-og öryggisnefndum stjórnenda og starfskrafta | Uppfyllt að hluta | 3, 11 | |
403-2 | Tegundir og tíðni meiðsla, atvinnusjúkdómar, fjarverudagar og fjöldi vinnutengdra dauðsfalla | 3 | ||
GRI 404 | Upplýsingar | Staðsetning | Heimsmarkmið | |
404-1 | Árlegur meðalfjöldi klukkustunda í þjálfun á hvern starfsmann | 27 klst. á stöðugildi | 4, 5 | |
404-2 | Áætlanir um símenntun starfsmanna og stuðningur við breytingar | 8 | ||
404-3 | Hlutfall starfsfólks sem fær reglulega rýni á frammistöðu og starfsþróun | 100% - Öllu starfsfólki er að lágmarki boðið upp á tvö samtöl á ári | 5 | |
GRI 405 | Upplýsingar | Staðsetning | Heimsmarkmið | |
405-2 | Hlutfall grunnlauna og þóknana kvenna í samanburði við karla | Uppfyllt að hluta - Jafnlaunakerfi | 5, 10 | |
GRI 407 | Upplýsingar | Staðsetning | Heimsmarkmið | |
407-1 | Rekstur og birgjar þar sem hætta er á sniðgöngu varðandi félagafrelsi og sameiginlega kjarasamningagerð | Uppfyllt að hluta | 8 | |
GRI 408 | Upplýsingar | Staðsetning | Heimsmarkmið | |
408-1 | Rekstur og birgjar þar sem veruleg hætta getur verið á barnaþrælkun | Uppfyllt að hluta | 8, 16 | |
GRI 409 | Upplýsingar | Staðsetning | Heimsmarkmið | |
409-1 | Rekstur og birgjar þar sem veruleg hætta getur verið á nauðungar- eða skylduvinnu | Uppfyllt að hluta - Stofnsamningur um vörukaup | 8 | |
GRI 413 | Upplýsingar | Staðsetning | Heimsmarkmið | |
413-1 | Rekstur með virkni í nærsamfélaginu, áhrifamat og þróunaráætlanir | Uppfyllt að hluta - Skilríkjaeftirlit | 3 | |
GRI 414 | Upplýsingar | Staðsetning | Heimsmarkmið | |
414-1 | Nýir birgjar sem voru skimaðir á grundvelli félagslegra viðmiða | Uppfyllt að hluta | 5 | |
414-2 | Neikvæð félagsleg áhrif í aðfangakeðjunni og aðgerðir sem gripið var til | Uppfyllt að hluta | 5 | |
GRI 416 | Upplýsingar | Staðsetning | Heimsmarkmið | |
416-1 | Mat á heilsu- og öryggisáhrifum vöru- og þjónustuflokka | Vöruskil 5 á 100 þúsund seldar einingar | 3 | |
GRI 417 | Upplýsingar | Staðsetning | Heimsmarkmið | |
417-1 | Kröfur til upplýsinga og merkinga á vörum og þjónustu | 1, 12 |
Til stjórnenda og hagsmunaaðila ÁTVR.
Við vorum ráðin af ÁTVR til að veita álit með takmarkaðri vissu á ófjárhagslegri upplýsingagjöf sem sett er fram með GRI tilvísunartöflu byggðri á Global Reporting Initiative standard (GRI Standards) í Árs- og samfélagsskýrslu ÁTVR fyrir árið 2023.
Verkefni okkar var framkvæmt til þess að leggja mat á:
Niðurstaða okkar er sett fram með áliti með takmarkaðri vissu.
Ábyrgð stjórnenda
Stjórnendur ÁTVR eru ábyrg fyrir söfnun, greiningu, gerð og framsetningu upplýsinganna sem settar eru fram í skýrslunni, og að tryggja að upplýsingarnar séu án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.
Óhæði og gæðaeftirlit
Við höfum uppfyllt kröfur um óhæði og önnur ákvæði siðareglna í samræmi við alþjóðlegar siðareglur (IESBA Code), sem byggðar eru á grundvallarreglum um heilindi, hlutlægni, faglega hæfni og varkárni, trúnað og faglega hegðun.
Deloitte ehf. lýtur alþjóðlegum staðli um gæðakerfi (e. International Standard on Quality Management (ISQM) 1 og hefur í samræmi við það innleitt umfangsmikið gæðaeftirlitskerfi, þar á meðal skráðar stefnur og verkferla varðandi fylgni við óhæðis- og siðakröfur faglega staðla og viðeigandi kröfur laga og reglna.
Ábyrgð óháðs endurskoðenda
Ábyrgð okkar er að láta í ljós álit með takmarkaðri vissu á völdum þáttum í GRI tilvísunartöflu og ófjárhagslegum upplýsingum sem settar eru fram í Árs- og samfélagsskýrslu ÁTVR. Við höfum framkvæmt vinnu okkar í samræmi við staðalinn ISAE 3000 (revised), Assurance Engagements Other than Audits or Reviews of Historical Financial Information, til að afla okkur takmarkaðrar vissu um álit okkar. Í samræmi við staðalinn höfum við skipulagt og framkvæmt vinnu okkar til að afla takmarkaðrar vissu á því að valdir þættir í GRI tilvísunartöflu og ófjárhagslegar upplýsingar séu án verulegrar skekkju.
Staðfestingarverkefni með áliti með takmarkaðri vissu (e. limited assurance) er minna að umfangi en staðfestingarverkefni með nægilegri vissu (e. reasonable assurance). Af því leiðir að staðfesting sem fæst er minni en væri í verkefni með nægilegri vissu. Með hliðsjón af mati á verulegum skekkjum, skipulögðum við og framkvæmdum vinnu okkar til að afla allra upplýsinga og skýringa sem nauðsynlegar eru til að styðja við álit okkar.
Við framkvæmdum skoðanir á gögnum, endurreikning gagna, yfirferð á aðferðum sem notaðar eru til að útbúa upplýsingarnar, sem og tókum viðtöl við þá aðila sem eru ábyrgir fyrir því að útbúa gögnin. Við tókum viðtöl við lykilaðila innan ÁTVR, beittum fyrirspurnum varðandi verklag og aðferð við að tryggja að þeir GRI mælikvarðar og ófjárhagslegar upplýsingar sem voru til skoðunar séu sett fram í samræmi við GRI. Við höfum lagt mat á ferla, tól, kerfi og eftirlitsþætti sem stuðst er við, við söfnun, greiningu, gerð og framsetningu upplýsinganna hjá ÁTVR. Við framkvæmdum gagnagreiningaraðgerðir og röktum upplýsingarnar sem greint er frá í undirliggjandi gögn. Ennfremur, höfum við lagt mat á framsetningu upplýsinga í Árs- og samfélagsskýrslu ÁTVR fyrir árið 2023, þar á meðal samræmi í upplýsingagjöfinni.
Álit
Byggt á þeim aðgerðum sem við höfum framkvæmt og þeirra gagna sem við höfum aflað, hefur ekkert komið í ljós sem bendir til annars en að valdir þættir í GRI tilvísunartöflu og ófjárhagsleg upplýsingagjöf ÁTVR í Árs- og samfélagsskýrslu fyrir árið 2023 sé að öllu verulegu leyti í samræmi við valda vísa í GRI standard og að texti sem snýr að sjálfbærni í Árs- og samfélagsskýrslu sé settur fram í samræmi við mælikvarða sem greint er frá.
Kópavogi, 16. maí 2024
Deloitte ehf.
Birna María Sigurðardóttir
Endurskoðandi