Birgjar
Góð tengsl og samvinna
Birgjar
Góð tengsl og samvinna

Við leggjum áherslu á góð tengsl og samvinnu við birgja og þjónustuaðila. Við gætum jafnræðis í samskiptum og við val og dreifingu á vörum. Öflug rafræn samskipti og birgjavefur bæta þjónustu og upplýsingaflæði.

Samskipti
Birgjar
Samskipti við birgja

Þeir aðilar sem hafa leyfi til innflutnings áfengis geta sótt um að koma vöru í sölu í Vínbúðir. Áður en viðskipti geta hafist, þurfa birgjar að gera stofnsamning við ÁTVR. Samningurinn tekur til allra vörukaupa frá birgjum og veitir jafnframt aðgang að þjónustuvef sem eingöngu er ætlaður birgjum. Jafnframt kveður samningurinn á um réttarstöðu aðila á grundvelli reglugerðar um vöruval, innkaup og dreifingu ÁTVR á áfengi (Nr. 1106/2015).

Á þjónustuvef hafa birgjar yfirsýn yfir stöðu umsókna, geta nálgast söluskýrslur og framlegðarskrá auk þess sem birtar eru almennar fréttir sem snúa að samskiptum við birgja. Árlega er framkvæmd viðhorfskönnun meðal birgja til að fá fram skoðanir þeirra á ýmsum þáttum. Almennt eru birgjar ánægðir með þjónustuvefinn og svara 72% að þeir séu ánægðir með vefinn.

Í könnuninni eru birgjar spurðir um þjónustuna á heildina litið, 53% eru mjög eða frekar ánægðir, 21% eru hlutlausir. Stöðugt er leitað leiða til að bæta þjónustu við birgja og eru ábendingar í könnuninni rýndar með það að markmiði að bæta samskipti og upplýsingagjöf.

Birgjar_Samskipti vid birgja
Stefna
Birgjar
Stefna og framkvæmd ÁTVR gagnvart birgjum

Allir sem hafa leyfi til innflutnings á áfengi geta sótt um að vörur þeirra fari í sölu.

Áður en viðskipti geta hafist þarf birgir að undirrita stofnsamning um vörukaup áfengis. Samningurinn er heildarsamningur og tekur til allra vörukaupa ÁTVR frá birgi og veitir jafnframt aðgang að þjónustuvef. Jafnframt kveður samningurinn á um réttarstöðu aðila á grundvelli reglugerðar um vöruval, innkaup og dreifingu ÁTVR á áfengi (nr. 1106/2015).